Tottenham og Manchester City áttu heimaleiki í Meistaradeildinni fyrr í kvöld, gegn Rauðu stjörnunni og Atalanta.
Bæði lið gerðu sér lítið fyrir og völtuðu yfir andstæðinga sína, skorandi fimm mörk hvort.
Sky Sports fylgdist með leikjunum og eru fréttamenn og knattspyrnusérfræðingar búnir að gefa leikmönnum einkunnir.
Harry Kane og Raheem Sterling voru bestir og fá þeir báðir 9 í einkunn fyrir sinn þátt. Kane skoraði tvennu gegn Rauðu stjörnunni á meðan Sterling skoraði þrjú og lagði upp gegn Atalanta.
Erik Lamela og Son Heung-min fengu einnig 9 í einkunn á meðan Sergio Agüero fékk 8.
Man City: Ederson (6), Walker (6), Rodri (6), Fernandinho (6), Mendy (6), Foden (6), Gundogan (7), De Bruyne (7), Mahrez (7), Sterling (9), Aguero (8).
Varamenn: Stones (5), Otamendi (6), Cancelo (5).
Tottenham: Gazzaniga (7), Aurier (7), Sanchez (7), Vertonghen (6), Davies (7), Ndombele (8), Sissoko (7), Lamela (9), Alli (8), Son (9), Kane (9).
Varamenn: Dier (6), Foyth (6), Lo Celso (6).
Atalanta: Gollini (6), Toloi (5), Djimsiti (5), Masiello (4), Castagne (5), de Roon (6), Freuler (5), Gosens (6), Malinovsky (6), Gomez (4), Ilicic (6).
Varamenn: Muriel (5), Hateboer (5), Pasalic (5),.
Rauða stjarnan: Borjan (5), Gobelijic (5), Degenek (4), Milunovic (5), Rodic (5), Vulic (5), Canas (5), Garcia (5), Marin (4), Van la Parra (6), Tomane (5).
Varamenn: Petrovic (5), Pavkov (5)
Athugasemdir