þri 22. október 2019 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Onana hafnaði PSG og Barcelona í sumar
Mynd: Getty Images
Andre Onana, 23 ára markvörður Ajax, sagði í viðtali við RMC að hann hafi hafnað því að ganga til liðs við PSG og Barcelona í sumar.

Onana hefur verið lykilmaður í liði Ajax undanfarin ár og er hann einnig búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í kamerúnska landsliðinu.

Onana var uppgötvaður í akademíu Samuel Eto'o í heimalandinu og flutti til Barcelona aðeins 14 ára gamall. Hann ólst því upp hjá félaginu en skipti yfir til Ajax í janúar 2015, þegar hann var 18 ára.

„Barcelona er heimili mitt en þetta var ekki rétti tíminn til að fara þangað. Þetta sumar var ekki tíminn til að skipta um félag, mér líður vel hérna og ég vill spila mikið."
Athugasemdir
banner
banner
banner