Mohamed Salah verður í leikmannahópi Liverpool á nýjan leik gegn Genk í Meistaradeildinni annað kvöld.
Salah missti af leiknum gegn Manchester United um helgina vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir gegn Leicester fyrir rúmum þremur vikum.
Salah missti af leiknum gegn Manchester United um helgina vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir gegn Leicester fyrir rúmum þremur vikum.
Salah er hins vegar í 19 manna hópi Liverpool sem ferðaðist til Belgíu í dag.
Trent Alexander-Arnold verður ekki með á morgun vegna veikinda og þá er varnarmaðurinn Joel Matip meiddur á hné og því fjarri góðu gamni.
Hópur Liverpool: Alisson, Fabinho, Van Dijk, Wijnaldum, Lovren, Milner, Keita, Firmino, Mane, Salah, Gomez, Adrian, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Lallana, Brewster, Robertson, Origi, Kelleher.
Athugasemdir