Real Madrid lagði Galatasaray að velli í riðlakeppni Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.
Eden Hazard lagði upp eina mark leiksins fyrir Toni Kroos en Belginn knái hefði hæglega getað bætt marki við leikinn.
Hann komst sérstaklega nálægt því að skora þegar hann slapp í gegnum vörn heimamanna og fór framhjá markveðinum.
Hann var því með hálfopið mark fyrir framan sig en skot hans fór í slánna og út. Hægt er að sjá atvikið með að smella hér.
Hazard var keyptur til Real í sumar fyrir rúmlega 100 milljónir evra. Hann hefur ekki verið að finna sig á upphafi tímabils og er aðeins kominn með eitt mark og tvær stoðsendingar í sjö keppnisleikjum með sínu nýja félagi.
Athugasemdir