Marc-André Ter Stegen, markvörður Barcelona á Spáni, gerði sig sekan um slæm mistök í 1-0 tapinu gegn Atlético í gær en það kostaði liðið stig.
Yannick Ferreira-Carrasco skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks en það gerði hann eftir sendingu frá argentínska vængmanninum Angel Correa.
Ter Stegen hljóp út úr marki Barcelona og fram völlinn er hann reyndi að taka boltann af Ferreira-Carrasco en belgíski leikmaðurinn klobbaði markvörðinn og skoraði örugglega.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Mark Ferreira-Carrasco gegn Barcelona
Athugasemdir