þri 22. nóvember 2022 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Maguire varð veikur og meiðsli Kane eru smávægileg
Mynd: EPA

Stuðningsmenn enska landsliðsins tóku að óttast um heilsu Harry Maguire og Harry Kane á meðan England rúllaði yfir Íran í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins í Katar.


Kane var tæklaður í upphafi síðari hálfleiks en spilaði hálftíma eftir það áður en honum var skipt útaf. 

Á bekknum sást til Kane þar sem búið var að binda þétt um ökklann og óttuðust stuðningsmenn að hann væri meiddur. 

„Ég held að það sé allt í lagi með Harry Kane. Hann varð fyrir slæmri tæklingu en ætti að vera klár í næsta leik," sagði Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, og sneri sér svo að hinum Harry.

„Maguire fann fyrir veikindum og tilkynnti okkur það strax, skömmu áður en Íran skoraði fyrra markið sitt. Okkur fannst tilgangslaust að halda honum inná, þetta virðast ekki vera alvarleg veikindi."


Athugasemdir
banner
banner
banner