Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. desember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bender-tvíburarnir leggja skóna á hilluna næsta vor
Mynd: Getty Images
Tvíburarnir Lars og Sven Bender munu leggja skóna á hilluna þegar þessu tímabili lýkur í Þýskalandi.

Þeir verða 32 ára í apríl og leika báðir með Bayer Leverkusen. Lars hefur leikið með liðinu í tólf tímabil eftir að hafa komið frá 1860 München. Hann hefur leikið nítján A-landsleiki á ferlinum.

Sven er miðvörður sem einnig getur leikið á miðjunni. Hann var líkt og Lars hjá 1860 München til ársins 2009 en þá gekk hann í raðir Dortmund.

Sven kom svo til Leverkusen árið 2017 og hefur verið þar síðan. Sven hefur leikið sjö A-landsleiki.


Athugasemdir
banner
banner