Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. desember 2020 19:13
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Arsenal og Man City: Rúnar Alex byrjar
Mynd: Getty Images
Arsenal tekur á móti Manchester City í 8-liða úrslitum deildabikarsins eftir tæpa klukkustund og hafa byrjunarlið beggja liða verið kynnt.

Rúnar Alex Rúnarsson er í byrjunarliði Arsenal og fær sitt stærsta tækifæri fyrir félagið til þessa.

Arsenal teflir fram nokkuð tilraunakenndu byrjunarliði þar sem Gabriel Martinelli mætir til leiks ásamt Mohamed Elneny og Joe Willock.

Pep Guardiola er ekki að spara marga lykilmenn þar sem Riyad Mahrez, Bernardo Silva og Gabriel Jesus eru allir í fremstu víglínu.

Hann gerir þó sjö breytingar eftir sigurinn gegn Southampton. Arteta gerir átta breytingar eftir tapið gegn Everton.

Arsenal: Rúnarsson, Mustafi, Gabriel, Kolasinac, Maitland-Niles, Elneny, Ceballos, Cedric, Willock, Lacazette, Martinelli.
Varamenn: Leno, Tierney, Mari, Smith Rowe, Pepe, Balogun, Nketiah.

Man City: Steffen, Cancelo, Dias, Laporte, Zinchenko, Rodrigo, Fernandinho, Bernardo, Mahrez, Foden, Jesus
Varamenn: Ederson, Walker, Stones, Sterling, Gundogan, Aguero, Torres
Athugasemdir
banner
banner