Brentford 1 - 0 Newcastle
1-0 Josh Dasilva ('66)
1-0 Josh Dasilva ('66)
Brentford er komið í undanúrslit í bikarkeppni í fyrsta sinn eftir 1-0 sigur gegn Newcastle í 8-liða enska deildabikarsins í dag.
Josh Dasilva gerði eina mark leiksins í nokkuð jöfnum leik. Dasilva er 22 ára gamall og ólst upp hjá Arsenal.
Bæði lið fengu góð færi í fyrri hálfleik en staðan var þó markalaus í leikhlé.
Josh Dasilva átti frábæran leik á miðjunni og skoraði frábært mark á 66. mínútu eftir góðan undirbúning frá Sergi Canos.
Bæði lið fengu fín færi en að lokum unnu heimamenn. Championship-lið Brentford er því komið í undanúrslit eftir sigur gegn lærisveinum Steve Bruce.
Athugasemdir