FH er í þjálfaraleit eftir að Eiður Smári Guðjohnsen var ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins. Eiður hafði samið við FH um að vera aðalþjálfari liðsins.
Arnar Þór Viðarsson var í morgun kynntur sem nýr landsliðsþjálfari með Eið Smára sér við hlið.
Arnar Þór Viðarsson var í morgun kynntur sem nýr landsliðsþjálfari með Eið Smára sér við hlið.
Það er því ljóst að Eiður, sem stýrði FH ásamt Loga Ólafssyni á síðasta tímabili, lætur af störfum hjá Hafnarfjarðarfélaginu.
Ekki náðist í Valdimar Svavarsson, formann FH, áður en þessi frétt var birt.
Mögulegt er að Logi Ólafsson snúi aftur sem aðalþjálfari en hann hafði tekið að sér starf tæknilegs ráðgjafa og þá átti Davíð Þór Viðarsson að vera aðstoðarþjálfari Eiðs.
Athugasemdir