Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. desember 2020 18:25
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Suso með sigurmarkið gegn Valencia
Suso gerði sigurmark Sevilla í dag.
Suso gerði sigurmark Sevilla í dag.
Mynd: Getty Images
Carrillo kostaði um 20 milljónir punda á sínum tíma.
Carrillo kostaði um 20 milljónir punda á sínum tíma.
Mynd: Getty Images
Suso gerði eina mark leiksins er Sevilla lagði Valencia að velli í spænsku deildinni í dag.

Valencia hefur verið að ganga herfilega á tímabilinu og er aðeins með 15 stig eftir 15 umferðir.

Sevilla var betri aðilinn í áhugaverðum leik þar sem bæði lið fengu færi til að sigra. Suso skoraði undir lokin og er Sevilla í 5. sæti, með 23 stig eftir 13 umferðir.

Elche og Osasuna gerðu þá jafntefli í fallbaráttunni. Gestirnir frá Osasuna voru mun betri og óðu í færum.

Osasuna náði forystunni í tvígang en í bæði skiptin tókst heimamönnum að jafna. Guido Carrillo, fyrrum dýrustu kaup í sögu Southampton, kom af bekknum og gerði seinna jöfnunarmark Elche.

Valencia 0 - 1 Sevilla
0-1 Suso ('81)

Elche 2 - 2 Osasuna
0-1 Ruben Garcia ('10 )
1-1 Fidel ('47 )
1-2 Darko Brasanac ('64 )
2-2 Guido Carrillo ('78 )
Rautt spjald: Inigo Perez, Osasuna ('90)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner