Arnar Þór Viðarsson var í dag ráðinn A-landsliðsþjálfari Íslands með Eið Smára Guðjohnsen sér við hlið.
Mikið hefur verið talað um kynslóðarskipti og Arnar kemur úr U21 landsliðinu, liði sem hann kom á Evrópumótið fyrir næsta ár. Hann segir að það sé
„Það er alveg ljóst að íslenska landsliðið er valið úr bestu leikmönnum Íslands," sagði Arnar á blaðamannafundi í dag.
„Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur í dag að það er ekkert til sem heitir kynslóðarskipti. Við ætlum ekki að búa til nýtt lið. Við erum þjálfarar íslenska landsliðsins núna og fyrir næsta verkefni í mars verður besta liðið valið; sá hópur og það lið sem við teljum veita okkur þann möguleika að skila okkur sem flestum stigum í hús."
Undankeppnin fyrir HM 2022 fer fram í heild sinni á næsta ári. Þar er Ísland í riðli með Þýskalandi, Rúmeníu, Norður-Makedóníu, Armeníu og Liechtenstein.
„Hverjir verða valdir og hverjir eru hættir, það kemur í ljós á næstu mánuðum. Við munum að sjálfsögðu vinna okkar vinnu almennilega og tala mikið og við marga. Þetta er alltaf spurning um það hver er bestur í hverri stöðu."
Athugasemdir