Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. desember 2022 00:13
Brynjar Ingi Erluson
Átján ára Brasilíumaður á leið til Chelsea
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er að ganga frá fyrstu kaupum janúargluggans en hinn 18 ára gamli Andrey Santos er að kom til félagsins frá Vasco da Gama í Brasilíu.

Santos er miðjumaður sem spilaði annað tímabil með aðalliði Vasco da Gama á þessu ári.

Hann var mikilvægur hlekkur í liðinu er það tryggði sæti sitt í efstu deild fyrir næsta tímabil.

Santos spilaði 33 leiki og skoraði 8 mörk á tímabilinu en hann er nú á leið til Chelsea.

Ítalski íþróttafréttamaðurinn segir að félögin hafi komist að samkomulagi um Santos og er verið að ganga frá síðustu atriðum samningsins. Vasco fær 70 prósent af kaupverðinu en hin 30 prósentin eru í eigu þriðja aðila.

Santos mun ganga í raðir Chelsea í janúar en þessi efnilegi miðjumaður á 8 leiki og 4 mörk fyrir yngri landslið Brasilíu og þykir með mest spennandi miðjumönnum Brasilíu um þessar mundir.


Athugasemdir
banner
banner