Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. desember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Auðvelt fyrir Sevilla og Real Sociedad
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Það fóru tólf leikir fram í 64-liða úrslitum spænska bikarsins í gær og eru engin úrslit sem komu sérstaklega á óvart, nema þegar sterkt B-deildarlið Eibar tapaði fyrir neðrideildaliði Ibiza Islas Pitiusas.


Sevilla og Real Sociedad unnu sína leiki örugglega og þá komust félög á borð við Real Valladolid, Alaves og Levante áfram í næstu umferð. Rayo Vallecano þurfti vítaspyrnukeppni gegn Saguntino til að komast áfram.

Athletic Bilbao, Villarreal og Getafe eru einnig komin áfram en Atletico Madrid og Celta Vigo eiga eftir að spila sína leiki. Real Madrid og Barcelona koma inn í næstu umferð bikarsins.

Torremolinos 0 - 3 Sevilla
0-1 Carlos Alvarez ('31)
0-2 Dani ('57, sjálfsmark)
0-3 Joan Jordan ('92)

CD Coria 0 - 5 Real Sociedad
0-1 Robert Navarro ('5)
0-2 Mohamed-Ali Cho ('17)
0-3 Brais Mendez ('45, víti)
0-4 Jon Karrikaburu ('79)
0-5 Jon Karrikaburu ('84)
Rautt spjald: Pedro Melli, Coria ('74)

Saguntino 0 - 0 Rayo Vallecano
1-3 í vítaspyrnukeppni

Arenas Club 1 - 5 Real Valladolid

Arnedo 1 - 3 Osasuna

Ibiza Islas Pitiusas 1 - 0 Eibar

Levante 2 - 1 Andorra

Merida AD 0 - 1 Alaves

Numancia 0 - 3 Sporting Gijon

Ceuta 3 - 2 UD Ibiza

Pontevedra 2 - 1 Tenerife

UD Logrones 0 - 0 Albacete
4-3 í vítaspyrnukeppni


Athugasemdir
banner
banner
banner