Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. janúar 2019 11:02
Magnús Már Einarsson
Oxlade-Chamberlain gæti snúið aftur í lið Liverpool í mars
Mynd: Getty Images
Endurhæfing Alex Oxlade-Chamberlain gengur vonum framar og hann gæti snúið aftur í lið Liverpool um miðjan mars.

Oxlade-Chamberlain meiddist mjög illa á hné síðastliðið vor og reiknað var með að hann yrði ekkert með á yfirstandi tímabili.

Endurhæfingin hefur hins vegar gengið mjög vel en Oxlade-Chamberlain byrjaði að skokka á dögunum og nú er hann byrjaður að æfa með bolta á æfingum.

Samkvæmt fréttum úr herbúðum Liverpool gæti hann mögulega tekið fullan þátt í æfingum liðsins frá miðjum febrúar.

Hann gæti því ef allt gengur upp verið klár í að spila með liðinu á nýjan leik um miðjan mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner