Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 23. janúar 2019 08:35
Magnús Már Einarsson
Sala var hræddur fyrir flugið - Leist ekki vel á flugvélina
Emiliano Sala.
Emiliano Sala.
Mynd: Nantes
Mynd: Getty Images
Ekkert hefur ennþá spurst til flugvélarinnar sem Emiliano Sala flaug með frá Nantes á sunnudag. Sala var í lítilli eins hreyfils flugvél ásamt flugmanni.

Flugvélin hvarf af ratsjám og þrátt fyrir mikla leit í gær hefur hún ekki fundist. Leitin fór aftur í gang í birtingu í morgun.

Argentínski framherjinn Sala varð um síðustu helgi dýrasti leikmaður í sögu Cardiff þegar félagið keypti hann frá Nantes á fimmtán milljónir punda.

Sala fór aftur til Nantes til að kveðja fyrrum liðsfélaga sína eftir undirskriftina hjá Cardiff. Í fyrrakvöld átti hann síðan að fljúga til Wales til að mæta á sína fyrstu æfingu sem var fyrirhuguð í gær.

Nicolas Pallois, varnarmaður Nantes, skutlaði Sala á flugvöllinn í Frakklandi. Sala ku hafa sagt við Pallois að hann hefði áhyggjur af fluginu en hann hafði flogið með sömu flugvél til Frakklands frá Wales um helgina og þá var talsverð ókyrrð í fluginu.

Rétt áður en flugvélin tók á loft frá Frakklandi sendi Sala félögum sínum í Nantes skilaboð á WhatsApp. Argentínskir fjölmiðlar birtu þessi skilaboð í gærkvöldi.

„Ég er hér í flugvél sem virðist vera að detta í sundur og ég er á leið til Cardiff. Þetta er brjálæði, ég byrja strax á æfingu síðdegis á morgun með nýju liði," sagði Sala á WhatsApp.

Sala sendi önnur skilaboð skömmu síðar: „Hvernig eruð þið strákar, er allt í góðu? Ef þið fáið ekki fréttir frá mér eftir einn og hálfan tíma, ég veit ekki hvort þeir þurfa að senda einhvern að leita að mér...ég er að verða hræddur!"

Sjá einnig:
Emiliano Sala - Fæddist í Argentínu en orðsporið varð til í Frakklandi
Flugsérfræðingur setur stórt spurningamerki við flugvélina
Viðamikil leit að flugvélinni - Búist við að báðir séu látnir
Stuðningsmenn Nantes safnast saman með gula túlípana
Lagst á bæn í Cardiff og Nantes
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner