mið 23. janúar 2019 17:30
Fótbolti.net
Southgate tók Gary Martin fyrir á liðsfundi
Gareth Southgate var stjóri hjá aðalliði Middlesbrough þegar Gary var þar.
Gareth Southgate var stjóri hjá aðalliði Middlesbrough þegar Gary var þar.
Mynd: Getty Images
Gary Martin, framherji Vals, lék með unglinga og varaliði Middlesbrough áður en hann gekk í raðir ÍA árið 2010. Gareth Southgate, núverandi landsliðsþjálfari Englendinga, var stjóri Middlesbrough lengi vel þegar Gary var hjá félaginu en Gordon Strachan tók síðan við af honum.

Gary Martin er gestur vikunnar í hlaðvarpsþættinum Miðjunni en þar segir hann frá því þegar Southgate tók hann fyrir hjá aðalliði Middlesbrough.

Á æfingasvæði Middlesbrough voru leikmenn í unglingaliðinu beðnir um að giska á úrslit fyrir leiki hjá aðalliðinu. Fyrir æfingu á laugardegi giskaði Gary á úrslit fyrir leik aðalliðsins gegn Manchester United daginn eftir.

„Ég var grjótharður stuðningsmaður Man United. Allir sögðu að Middlesbrough myndi vinna en ég sagði að Manchester United myndi vinna 2-0. Macheda var að spila þarna og ég sagði að hann myndi skora fyrsta markinu," sagði Gary.

„Ég var síðan á leið út á æfingu þegar starfsmaður sagði við mig að ég ætti að fara og hitta aðalliðið í fundarherberginu. Ég trúði ekki að ég væri hluti af hópnum fyrir leikinn. Ég settist niður með leikmönnunum og horfði á nokkrar klippur með þeim."

„Southgate kallaði síðan í mig og sagði 'Gary, getur þú komið hérna fremst og útskýrt hvernig við töpum 2-0 fyrir Man United á morgun?' Ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Honum fannst þetta frekar fyndið og ég útskýrði að ég væri stuðningsmaður United."

„Þeir gerðu ekki mikið úr þessu. Ef þetta hefði verið leikur í fallbaráttunni hefði ég kannski verið drepinn. Hann er svona náungi, hann gerði ekki of mikið úr þessu,"


Southgate varð þjóðhetja á Englandi í sumar þegar hann leiddi liðið í undanúrslit á HM í Rússlandi.

„Ég bjóst ekki við að hann yrði síðar landsliðsþjálfari. Hann stóð sig vel með U21 liði Englendinga og hann er góður með unga leikmenn eins og hann sýndi hjá Middlesbrough. Hann treystir ungum leikmönnum sem er mjög gott."

Smelltu hér til að hlusta á Gary Martin í Miðjunni
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner