Jack Grealish var tekinn af velli hjá Aston Villa í kvöld sem spilaði við Newcastle í ensku úrvalsdeildinni.
Grealish er mikilvægasti leikmaður Villa og lagði upp annað mark liðsins í 2-0 sigri á Villa Park.
Ollie Watkins skoraði fyrra mark heimaliðsins áður en Bertrand Traore bætti við því öðru.
Grealish fór af velli þegar 88 mínútur voru komnar á klukkuna sem er alls ekki algeng sjón hjá Villa.
Miðjumaðurinn hafði spilað 42 deildarleiki í röð án þess að fara af velli sem er ansi merkilegur áfangi.
📊 Jack Grealish’s run of playing every minute of 42 successive PL matches comes to an end, subbed in the 88th minute against Newcastle pic.twitter.com/z4odSD32Vh
— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) January 23, 2021
Athugasemdir