Elías Már Ómarsson skoraði fyrir lið Excelsior í kvöld sem mætti Oss í hollensku annarri deildinni.
Elías er mikilvægasti leikmaður Excelsior en hann hefur raðað inn mörkum á tímabilinu og er með 18 stykki.
Aðeins einn leikmaður er með fleiri mörk en Elías í deild en hann heitir Robert Muhren og er á mála hjá Cambuur.
Elías skoraði með fínum skalla í seinni hálfleik og var Excelsior að vinna sinn annan leik í röð í deild.
Liðið situr í 12. sæti deildarinnar og er sex stigum frá áttunda sætinu sem er umspilssæti um að komast í efstu deild.
Hér má sjá mark hans í kvöld. Í texta ESPN er markinu lýst sem alvöru framherjamarki.
Een echte spitsengoal van Elías Ómarsson, hij zet @excelsiorrdam op een 1-2 voorsprong! Dit is alweer de achttiende goal van de spits 👏
— ESPN NL (@ESPNnl) January 23, 2021
📺 ESPN
#️⃣ #topexc pic.twitter.com/vIWq4IaTRW
Athugasemdir