Það verður vonandi líf og fjör í þýska boltanum í dag og kvöld en sex leikir verða spilaðir í efstu deild þar í landi.
Fimm af þeim leikjum hefjast klukkan 14:30 og þar á meðal þeikur Bayer Leverkusen og Wolfsburg á heimavelli þess fyrrnefnda.
Alfreð Finnbogason mun vonandi fá tækifæri í liði Augsburg sem spilar við Union Berlin á sama tíma.
Alfreð klikkaði á vítaspyrnu í síðasta leik gegn Bayern Munchen þar sem Augsburg þurfti að sætta sig við 1-0 tap.
Kvöldleikurinn er viðureign Hertha Berlin og Werder Bremen en flautað er til leiks klukkan 17:30.
Þýska Bundesligan:
14:30 Bielefeld - Frankfurt
14:30 Augsburg - Union Berlin
14:30 Leverkusen - Wolfsburg
14:30 Freiburg - Stuttgart
14:30 Mainz - RB Leipzig
17:30 Hertha Berlin - Werder Bremen
Athugasemdir