Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. febrúar 2019 14:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino missti sig - „Hef aldrei séð hann svona"
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var brjálaður eftir tapið gegn Burnley í dag.

Eftir að lokaflautið gall þá æddi Pochettino upp að Mike Dean, dómara leiksins, og húðskammaði hann. Myndband af því er hér neðst í fréttinni.

Pochettino var ósáttur með hornspyrnuna sem Burnley fékk í fyrra marki sínu. Hann vildi meina að það hefði átt að vera markspyrna.

„Ég hef aldrei séð Pochettino og Jesus Perez (aðstoðarstjóra Tottenham) bregðast svona við eftir leik," skrifaði blaðamaðurinn Simon Peach á Twitter.

„Þetta var ekki eðlileg hegðun hjá mér. Kannski var þetta vegna þess að ég vissi fyrir leikinn og eftir leikinn að það yrði erfitt fyrir okkur að berjast um titilinn ef við myndum ekki fá þrjú stig í dag," sagði Pochettino.

Á Pochettino von á refsingu?

„Ég mun taka öllu því sem gerist. En ég vona að þetta fari ekkert lengra."



Athugasemdir
banner
banner
banner