16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu halda áfram í kvöld en tveir leikir eru á dagskrá. Atlético Madríd mætir Chelsea í Rúmeníu á meðan Lazio fær Evrópumeistara Bayern München í heimsókn.
Atlético og Chelsea ákváðu í samráði við UEFA að leikurinn yrði spilaður á National-leikvanginum í Rúmeníu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar en ekki er hægt að spila á Spáni.
Lazio spilar á meðan við Evrópumeistara Bayern og mætast liðin á Ólympíuleikvanginum í Róm.
Leikir dagsins:
20:00 Atletico Madrid - Chelsea
20:00 Lazio - Bayern
Athugasemdir