Brasilíumaðurinn Raphinha skoraði þriðja mark Leeds í kvöld sem vann góðan sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni.
Leeds vann leikinn með þremur mörkum gegn engu en mark Raphinha kom undir lok leiks. Hann skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu.
Leikmaðurinn fagnaði markinu með að fara úr treyjunni og voru skilaboð til Ronaldinho og fjölskyldu hans á bol leikmannsins.
Móðir Ronaldinho lést á dögunum eftir baráttu við Covid-19. Raphinha fagnaði marki sínu eins og Ronaldinho gerði reglulega þegar hann var leikmaður.
Raphinha fór síðan úr treyjunni og var í bol sem stóð á: „Sendi styrk til Asis Moreira fjölskyldunnar. Hvíldu í friði Dona Miguelina."
Athugasemdir