Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. mars 2019 13:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikur: Stjarnan hafði betur gegn HK
Guðmundur Steinn var með tvennu.
Guðmundur Steinn var með tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 3 - 2 HK
Mörk Stjörnunnar: Guðmundur Steinn Hafsteinsson 2, Þorsteinn Már Ragnarsson

Pepsi-Max deildarliðin Stjarnan og HK áttust við í æfingaleik á Stjörnuvelli í Garðabæ snemma á þessum laugardegi.

Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Þorsteinn Már Ragnarsson komu Stjörnunni í 2-0, en HK tókst að jafna metin í 2-2. Þannig enduðu ekki leikar þar sem Guðmundur Steinn náði að tryggja Stjörnunni 3-2 sigur.

Bæði þessi lið hafa lokið leik í Lengjubikarnum og eru í lokaundirbúningi sínum fyrir Pepsi-deildina.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner