Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 23. mars 2019 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Garcia hrósar Van Dijk í hástert
Mynd: Getty Images
Luis Garcia er eins og aðrir Liverpool stuðningsmenn, og flestir fótboltaunnendur, mjög hrifinn af varnarmanninum Virgil van Dijk.

Garcia er fyrrum leikmaður Liverpool. Hann lék með liðinu frá 2004 til ársins 2007.

Van Dijk hefur verið eins og klettur í hjarta varnar Liverpool síðan hann kom frá Southampton fyrir 75 milljónir punda í janúar á síðasta ári. Hann er stór ástæða þess að Liverpool á stóran möguleika á því að vinna Englandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í 29 ár.

„Van Dijk lætur allt líta auðveldlega út," sagði Garcia sem er að taka þátt í góðgerðarleik á Anfield í dag.

„Hann er einn af þessum leikmönnum sem þú þarft að hafa í þínu liði, ekki bara út af því hvernig hann spilar, líka út af persónuleikanum."

„Á vellinum er hann alltaf réttur maður á réttum stað. Það er mjög erfitt að finna leikmann eins og hann."

Útsendingu frá góðgerðarleiknum má finna hér að neðan. Í leiknum taka þátt nokkrir af þeim leikmönnum sem tóku þátt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2005. Leikurinn er einn sá besti sem spilaður hefur verið í Meistaradeildinni.

Liverpool vann AC Milan í vítaspyrnukeppni, en liðið kom til baka eftir að hafa lent 3-0 undir.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner