Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 23. mars 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hazard neitar því að hann sé búinn að semja við Real
Mynd: Getty Images
Framtíð Eden Hazard, leikmaður Chelsea, hefur verið mikið í umræðunni. Orðrómurinn hefur verið sá að Hazard sé búinn að semja við Real Madrid en bíði eftir því að félögin nái samkomulagi um kaupverð.

Hazard er eins og er með landsliðsverkefni með Belgíu en hann skoraði tvö mörk á fimmtudagskvöldið.

Aðspurður um orðrómana um möguleg vistaskipti til Real Madrid í viðtali í kvöld hafði Hazard þetta segja: „Það er ekkert til í þessum orðómum," sagði Hazard.

„Ég er eingöngu að einbeita mér að leiknum gegn Kýpur á morgun."

Chelsea er sagt hafa neitað sextíu milljón punda tilboði Real í Hazard fyrr í mánuðinum. Hazard á aðeins rúmt ár eftir af samningi sínum og hefur ekki viljað framlengja við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner