Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. mars 2019 16:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn B-deild: Reynir S. setti fimm á Skallagrím
Kórdrengir, KH og Leiknir F. unnu
Theódór átti mjög góðan leik.
Theódór átti mjög góðan leik.
Mynd: Reynir S.
Nokkrir leikir eru búnir í B-deild Lengjubikars karla í dag.

Í riðli 1 vann Reynir Sandgerði öruggan sigur gegn Skallagrími, 5-0. Theódór Guðni Halldórsson fór á kostum í leiknum og skoraði þrennu. Theódór kom nýverið til Reynis frá Njarðvík.

Reynir er með átta stig í efsta sæti riðilsins eftir þennan sigur. Skallagrímur er í þriðja sæti með sex stig.

Í riðli 2 unnu hið frábærlega mannaða lið Kórdrengja sigur gegn Þrótti Vogum, 2-1. Kórdrengir eru í öðru sæti riðilsins með níu stig eftir fjóra leiki. Þróttur V. er með sex stig.

Það fór annar leikur fram í riðli 2 og þar vann KH dramatískan 3-2 sigur á Augnbliki. Þetta eru liðin sem komust upp í 3. deild á síðustu leiktíð. KH er með sex stig og Augnablik er án stiga.

Þá vann Leiknir F. 4-2 sigur á Fjarðabyggð í Fjarðabyggðarhöllinni. Leiknir F. er með fjögur stig eftir þrjá leiki, en Fjarðabyggð hefur ekkert stig fengið.

Riðill 1
Skallagrímur 0 - 5 Reynir S.
0-1 Theódór Guðni Halldórsson ('30)
0-2 Theódór Guðni Halldórsson ('34)
0-3 Admir Kubat ('59)
0-4 Theódór Guðni Halldórsson ('61)
0-5 Haukur Ingi Júlíusson ('84)

Riðill 2
Þróttur V. 1 - 2 Kórdrengir
1-0 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('4)
1-1 Magnús Þórir Matthíasson ('6)
1-2 Þorlákur Ari Ágústsson ('74)

KH 3 - 2 Augnablik
1-0 Sveinn Ingi Einarsson ('8)
1-1 Gabriel Delgado Costa ('44)
2-1 Jóhann Hrafn Jóhannsson ('67)
2-2 Heiðar Ingi Þórisson ('72, víti)
3-2 Pétur Máni Þorkelsson ('90)

Riðill 4
Leiknir F. 4 - 2 Fjarðabyggð
1-0 Povilas Krasnovskis ('40)
1-1 Markaskorara vantar ('46)
2-1 Marteinn Már Sverrisson ('55)
2-2 Bjartur Hólm Hafþórsson ('70)
3-2 Marteinn Már Sverrisson ('71)
4-2 Unnar Ari Hansson ('75)
Rautt spjald: Jóhann Ragnar Benediktsson, Fjarðabyggð ('91)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner