Lionel Messi er meiddur á nára og er því kominn heim til Barcelona. Messi var í landsliðshópi Argentínu fyrir leiki liðsins gegn Venesúela og Morokkó.
Í gær spilaði Messi gegn Venesúela en nárameiðsli koma í veg fyrir að hann verði með gegn Morokkó á þriðjudaginn.
Messi hafði ekki gefið kost á sér í landslið Argentínu eftir HM en snéri til baka gegn Venesúela. Sú endurkoma fór ekki vel því Argentína tapaði leiknum 1-3.
Stuðningsmenn Barcelona vonast líklega eftir því að Messi verði orðinn heill heilsu fyrir leiki liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni.

Athugasemdir