Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. mars 2019 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Mögnuð stoðsending Pogba á Griezmann
Mynd: Getty Images
Heimsmeistarar Frakklands fóru til Moldavíu í gær og unnu þar öruggan 4-1 sigur.

Frakkar kláruðu leikinn með góðum kafla í fyrri hálfleiknum. Staðan í hálfleik var 3-0.

Fyrsta mark leiksins skoraði Antoine Griezmann eftir magnaða sendingu frá Paul Pogba, miðjumanni Manchester United. Sendingin er hreint út sagt stórkostleg og afgreiðslan einnig mjög góð.

Smelltu hér til að sjá markið og smelltu hér til að sjá frábært sjónarhorn af markinu.

Næsti leikur hjá Griezmann, Pogba og félögum er gegn Íslandi á mánudag. Þá mega þeir félagar sleppa öllu svona.

Þess má geta að Griezmann var að gefa út mynd sem er á Netflix. Myndin heitir Antoine Griezmann: The Making of a Legend.
Athugasemdir
banner
banner
banner