Hið öfluga 17 ára drengjalandslið Íslands mun í dag mæta Þýskalandi í öðrum leik liðsins í milliriðli undankeppni EM 2020. Leikurinn er í Þýskalandi.
Leikurinn hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á vef þýska knattspyrnusambandsins.
Smelltu hér til að fara á vef þýska knattspyrnusambandsins.
Ísland vann fyrsta leik sinn í riðlinum 2-1 gegn Slóveníu á meðan Þýskaland og Hvíta Rússland skildu jöfn.
Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum gegn Slóveníu.
Athugasemdir