Gareth Bale segist ætla að snúa aftur til Real Madrid þegar lánssamningur hans hjá Tottenham rennur út í sumar.
Bale hefur skorað tíu mörk í 25 leikjum á tímabilinu en hann hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Tottenham.
„Ég fór fyrst og fremst til Spurs til að spila fótbolta. Ég vildi vera í góðri leikæfingu á EM (í sumar)," sagði Bale.

„Upphaflega planið var að taka tímabil hjá Spurs og eiga eitt ár eftir af samningi hjá Real Madrid eftir EM."
„Ég stefni á að fara til baka - það er ekkert annað sem ég hef planað."
Athugasemdir