Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. mars 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Calhanoglu vill spila fyrir Galatasaray
Hakan Calhanoglu í leik með Milan
Hakan Calhanoglu í leik með Milan
Mynd: Getty Images
Tyrkneski landsliðsmaðurinn Hakan Calhanoglu á sér draum um að spila fyrir Galatasaray í heimalandinu.

Calhanoglu er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hann spilaði fyrir Karlsruher, Hamburger SV og Bayer Leverkusen áður en Milan keypti hann fyrir fjórum árum.

Hann á tyrkneska foreldra og ákvað að spila fyrir Tyrkland en hann á sér þann draum að spila í tyrknesku deildinni einn daginn og þá fyrir Galatasaray.

Calhanoglu verður samningslaus í sumar og hefur hann ekki komist að samkomulagi við Milan um að framlengja. Galatasaray virðist vera í myndinni miðað við þau ummæli sem hann lét falla á dögunum.

„Ég vonast til að spila fyrir Galatasaray í framtíðinni. Af hverju ekki? Ég styð Galatasaray og er með húðflúr af ljóni á mér sem sannar það," sagði Calhanoglu.
Athugasemdir
banner
banner
banner