Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. mars 2021 20:16
Victor Pálsson
Greenwood dregur sig úr enska hópnum - Cantwell kemur inn
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur dregið sig úr enska U21 landsliðshópnum vegna meiðsla.

Þetta var staðfest í kvöld en Greenwood var upphaflega valinn í 23-manna hóp Aidy Boothroyd.

Riðlakeppni EM U21 hefst á miðvikudaginn en útsláttarkeppnin verður svo spiluð í maí og júní.

England hefur leik á fimmtudaginn gegn Sviss í riðlakeppninni en Greenwood mun ekki spila þá viðureign.

Todd Cantwell, leikmaður Norwich, tekur pláss Greenwood en hann á að baki þrjá landsleiki fyrir U21 liðið.

Greenwood mun missa af öllum þremur leikjum Englands gegn Sviss, Portúgal og Króatíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner