Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 23. mars 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hetja Benevento vill feta í fótspor Batistuta og Crespo
Adolfo Gaich fagnar sigurmarkinu gegn Juventus
Adolfo Gaich fagnar sigurmarkinu gegn Juventus
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Adolfo Gaich skoraði sigurmark Benevento gegn Juventus um helgina en hann er á láni frá CSKA Moskvu. Hann vonast til að feta í fótspor þeirra Gabriel Batistuta og Hernan Crespo.

Batistuta og Crespo áttu magnaðar stundir í ítalska boltanum en þeir voru um tíma bestu framherjar deildarinnar. Crespo vann deildina þrisvar sinnum með Inter auk þess sem hann vann ítalska bikarinn og UEFA-bikarinn með Parma.

Batistuta vann á meðan ítölsku deildina með Roma og bikarinn með Fiorentina en Gaich horfir mikið upp til þeirra.

CSKA Moskva keypti hann frá San Lorenzo fyrir tímabilið en hann átti erfitt uppdráttar í Rússlandi og virtist ekkert ganga hjá honum fyrir framan markið.

Félagið lánaði hann til Benevento og þar virðist hann vera að finna sig en hann er með tvö mörk í fimm leikjum í ítölsku deildinni og var annað þeirra gott sigurmark um helgina gegn Juventus.

„Vonandi mun hann eiga bjarta framtíð í Seríu A eins og Batistuta og Crespo en það eru mörg önnur dæmi. Við vonum að við fáum svipuð tækifæri og sjáum hvað gerist en vonandi getur hann samið við Milan, Juventus eða Roma einn daginn," sagði umboðsmaður Gaich.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner