Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. mars 2021 19:00
Victor Pálsson
Ísland í sérmerktum jakka gegn Þýskalandi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Íslenska karlalandsliðið fær erfitt verkefni á fimmtudag er liðið mætir Þýskalandi ytra í undankeppni HM.

Þýskaland er með gríðarlega sterkt landslið en um er að ræða fyrsta leik liðanna í riðlakeppninni.

Ísland fékk ekki góðar fréttir fyrir þennan stórleik en Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki með þar sem eiginkona hans á von á þeirra fyrsta barni.

Landsleikurinn verður 500. landsleikur í sögu Íslands og vonandi verður hægt að kreista fram úrslit gegn fallbyssunum frá Þýskalandi.

Í tilefni af 500. landsleiknum þá mun landsliðið klæðast sérmerktum jakka fyrir leik en þetta kemur fram í tilkynningu KSÍ.

Jakkarnir munu síðar fara í sölu á fyririsland.is og er hægt að nálgast þá þar. Mynd af þeim má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner