þri 23. mars 2021 08:41
Magnús Már Einarsson
Man Utd gæti skipt Van de Beek út - Origi til Inter?
Powerade
Van de Beek hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Manchester United.
Van de Beek hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Manchester United.
Mynd: Getty Images
Divock Origi.
Divock Origi.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin halda áfram að kokka upp kjaftasögur. Njótið!



Manchester City gæti reynt að fá Danny Ings (28) frá Southampton til að fylla skarð Sergio Aguero í sumar. (Sky)

Liverpool fær 20% af kaupverðinu ef Southampton selur Ings. (Mirror)

Manchester United gæti boðið miðjumanninn Donny van de Beek (23) sem hluta af kaupverði fyrir aðra leikmenn næsta sumar. (90 min)

Steve Bruce, stjóri Newcastle, ætlar að gefa leikmönnum sex daga frí í vikunni þrátt fyrir að liðið sé í harðri fallbaráttu. (Mail)

Patson Daka (22), framherji Red Bull Salzburg, er undir smásjá Manchester United, Manchester City, Liverpool og Arsenal. Daka hefur skorað 20 mörk í 18 leikjum á tímabilinu. (Mail)

Wolves vill fá kantmanninn Lucas Ocampos (26) frá Sevilla en hann er með riftunarverð í samningi sínum upp á 62 milljónir punda. (Football Insider)

Arsenal telur að Martin Ödegaard (22) hafi áhuga á að vera lengur hjá félaginu en hann er á láni frá Real Madrid fram á sumar. (Times)

Brasilíski varnarmaðurinn Thiago Silva (36) er að gera nýjan eins árs samning við Chelsea. (Express)

Galatasaray vill fá Patrick van Aanholt (30) frá Crystal Palace. (Mail)

AC Milan ætlar að berjast við Tottenham um Dusan Vlahovic (21) framherja Fiorentina. (Teamtalk)

Raphael Varane, varnaramaður Real Madrid, segist vonast til að Kylian Mbappe (22) komi til félagsins. (Goal)

Aston Villa er tilbúið að hlusta á tilboð í framherjann Wesley (24) í sumar. (Football Insider)

Newcastle vill fá framherjann Adam Armstrong (24) aftur frá Blackburn. (Teamtalk)

Inter er að íhuga að reyna að fá Divock Origi (25) frá Liverpool. (Calcio Mercato)

Houssem Aouar (22) miðjumaður Lyon er líklega á leið til Juventus í sumar. (Tuttosport)
Athugasemdir
banner
banner
banner