Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 23. mars 2021 09:30
Magnús Már Einarsson
Manchester City vill fá Ings
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur áhuga á að fá Danny Ings framherja Souhampton í sínar raðir í sumar að sögn Sky Sports.

Sergio Aguero verður samningslaus í sumar og miklar líkur eru á að hann fari frá Manchester City.

Hinn 28 ára gamli Ings er ofarlega á lista Manchester City en félagið hefur einnig skoðað Erling Braut Haaland hjá Borussia Dortmund.

Mörg önnur félög hafa áhuga á Haaland en hann er sagður kosta 100 milljónir punda.

Sky segir að Manchester City gæti því snúið sér að Ings sem á rúmt ár eftir af samningi hjá Southampton. Ings hefur raðað inn mörkum með liðinu síðan hann kom frá Liverpool árið 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner