Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. mars 2021 18:30
Victor Pálsson
Ödegaard um framtíðina: Hef ekki hugsað út í þetta
Mynd: Getty Images
Martin Ödegaard hefur ekki hugsað út í hvort hann verði lengur hjá Arsenal en út tímabilið.

Ödegaard skrifaði undir samning við enska félagið í janúar en hann kom til félagsins á láni frá Real Madrid á Spáni.

Tækifærin voru af skornum skammti á Spáni og hefur Norðmaðurinn fundið sig hjá Arsenal síðustu mánuði.

Margir vilja að Ödegaard verði keyptur í sumar en þessi 22 ára gamli leikmaður veit sjálfur lítið að svo stöddu.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá hef ég ekkert hugsað út í þetta," sagði Odegaard við VG.

„Ég er með samkomulag þar til í sumar og einbeiti mér að því. Ég vil stöðugleika og að fá að þróa minn leik, það er það mikilvægasta."
Athugasemdir
banner
banner
banner