Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. mars 2021 10:00
Magnús Már Einarsson
Óvíst hvort Kimmich spili gegn Íslandi
Icelandair
Joshua Kimmich
Joshua Kimmich
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Joshua Kimmich, miðjumaður Bayern Munchen, verði með þýska landsliðinu gegn því íslenska í undankeppni HM á fimmtudaginn.

Kimmich hefur verið veikur undanfarna daga og hann kom ekki til móts við þýska liðið í gær eins og aðrir leikmenn.

Kimmich ætti að koma til móts við liðið í dag eða á morgun en óvíst er hvort hann fari beint í leik á fimmtudag.

Þjóðverjar mæta Rúmenum á sunnudag og Norður-Makedóníu í næstu viku.

Þá er einnig óvíst með þátttöku Robin Gosens, leikmanns Atalanta, en hann hefur verið að glíma við meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner