Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 23. mars 2021 12:13
Magnús Már Einarsson
Rakel ólétt og ekki með Blikum í sumar
Rakel Hönnudóttir
Rakel Hönnudóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rakel Hönnudóttir verður ekki með Íslandsmeisturum Breiðabliks í sumar en hún er ólétt.

Rakel greinir frá óléttunni á Instagram síðu sinni.

Hin 32 ára gamla Rakel varð Íslandsmeistari með Breiðabliki í fyrra en hún hefur skorað 125 mörk í 215 leikjum í Pepsi Max-deildinni á ferli sínum.

Rakel á einnig 103 landsleiki að baki en hún tilkynnti í vetur að hún væri hætt að leika með landsliðinu.

Breiðablik hefur misst marga máttarstólpa fyrir komandi tímabil en auk Rakelar eru leikmenn eins og Alexandra Jóhannsdóttir, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir,
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Sonný Lára Þráinsdóttir og
Sveindís Jane jónsdóttir horfnar á braut.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner