þri 23. mars 2021 17:59
Victor Pálsson
Salah: Þetta mun lagast
Mynd: Getty Images
Gengi Liverpool mun batna á næstu vikum að sögn Mohamed Salah sem var nýlega valinn leikmaður mánaðarins fyrir febrúar.

Salah hefur mögulega verið besti leikmaður Liverpool á tímabilinu en aðrir leikmenn hafa upplifað ansi erfiða tíma.

Liverpool vann Wolves 1-0 í síðasta deildarleik en situr þrátt fyrir það í sjöunda sæti eftir 29 leiki eftir að hafa unnið úrvalsdeildina í fyrra.

„Það er góð tilfinning að vinna eitthvað aftur. Mér líður vel með þetta og er ánægður með síðustu úrslit, vonandi getum við haldið áfram," sagði Salah.

„Þetta er erfitt fyrir okkur alla vegna þess hvað við höfum lent í og vegna stöðunnar í ensku úrvalsdeildinni. Ég trúi því að þetta muni lagast."

„Við gerum vel í Meistaradeildinni. Ég vil ekki tala um mitt tímabil því við erum lið, svo ég myndi segja að þetta tímabil hafi verið erfitt fyror okkur öll."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner