Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. mars 2021 15:41
Magnús Már Einarsson
Sule ekki með gegn Íslandi
Icelandair
Mynd: Getty Images
Niklas Sule, varnarmaður Bayern Munchen, verður ekki með í leiknum gegn Íslandi í undakeppni HM á fimmtudag ef marka má þýska fjölmiðla.

Sule er að glíma við meiðsli á læri og þó að meiðslin séu ekki alvarleg þá er ljóst að hann nær ekki leiknum á fimmtudag.

Bayern Munchen vonast til að Sule nái stórleiknum gegn RB Leipzig þann 3. apríl en þar verða varnarmennirnir Alphonso Davies og Jerome Boateng báðir í banni.

Þá er ljóst að Robin Gosens, leikmaður Atalanta, verður ekki með Þýskalandi gegn Íslandi á fimmtudag vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner