Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. mars 2021 23:56
Victor Pálsson
Tottenham orðað við þrjá markmenn
Endalok?
Endalok?
Mynd: Getty Images
Tottenham er að skoða þrjá markmenn sem gætu komið til félagsins þegar sumarglugginn opnar á ný.

Frá þessu greina enskir miðlar en Hugo Lloris, núverandi markvörður liðsins, verður samningslaus eftir ár.

Samkvæmt þessum fregnum koma þeir Dean Henderson, Nick Pope og Sam Johnstone allir til greina.

Henderson er varamarkvörður Manchester United en hefur undanfarið fengið að spila meira í stað fyrir David de Gea.

Pope er aðalmarkvörður Burnley og Johnstone hefur staðið sig vel með West Brom á þessu tímabili.

Lloris hefur spilað með Tottenham frá árinu 2012 en hann er orðinn 34 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner
banner