Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 23. apríl 2019 16:29
Elvar Geir Magnússon
Bjössi Hreiðars: Eiður er nær þessu en Kiddi
Sigurbjörn Hreiðarsson.
Sigurbjörn Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, dró FH upp úr pottinum þegar drátturinn fyrir 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins fór fram í dag.

Það verður því sannkallaður risaslagur strax í bikarnum.

Það var létt yfir Sigurbirni þegar Fótbolti.net ræddi við hann eftir dráttinn. Stærsti hluti viðtalsins fór þó í að ræða leikinn á föstudaginn þegar Valur mætir Víkingi Reykjavík í opnunarleiknum.

„Ég hef horft á síðustu leiki Víkings og mér finnst þeir sprækir. Það eru margir góðir leikmenn í Víkingsliðinu. Arnar (Gunnlaugsson) er að gera fína hluti með þá. Þeir eru mun betri en fólk er að segja. Þetta er lið sem verður erfitt að mæta í fyrstu umferð," segir Sigurbjörn.

Sóknarleikurinn verður í lagi
Sóknarmiðjumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson er á meiðslalistanum og óvíst hvenær hann snýr aftur. Þá var varnarmaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson ekki með í Meistarakeppni KSÍ í síðustu viku.

„Eiður er nær þessu en Kiddi. Vonandi verður Eiður með, en við sjáum hvað setur. Birnir Snær (Ingason) hefur verið meiddur og hefur ekki verið með að fullu í nokkrar vikur. Aðrir eru klárir í bátana í fyrsta leik."

Sóknarleikurinn hjá Val hefur verið í umræðunni og ekki þótt sannfærandi í síðustu leikjum. Er það áhyggjuefni?

„Sóknarleikurinn tikkar inn þegar hann þarf að tikka inn. Það eru breytingar á sóknarlínunni og við erum að vinna í því að slípa hlutina saman. Við verðum í lagi."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

Pepsi Max-deildin:

föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)

laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner