Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. apríl 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Crystal Palace ætlar að reyna við Grealish í sumar
Jack Grealish verður einn heitasti bitinn á markaðnum í sumar
Jack Grealish verður einn heitasti bitinn á markaðnum í sumar
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace ætlar að reyna við Jack Grealish, leikmann Aston VIlla, í sumar en það er Daily Mail sem greinir frá.

Palace gæti misst Wilfried Zaha í sumar en hann hefur verið lykilmaður í liðinu síðustu ár og hefur skorað 9 mörk og lagt upp 8 í 33 leikjum á þessu tímabili.

Mörg stórlið eru að horfa til Zaha og gætu þurft að borga allt að 80 milljónir punda fyrir þjónustu hans en Palace er þegar farið að skoða leikmenn sem geta fyllt skarðið.

Grealish er þar efstur á lista en hann hefur verið magnaður með Villa í B-deildinni. Hann hefur skorað 5 mörk og lagt upp önnur 5 mörk í 28 leikjum og hefur reynst Villa mikilvægur.

Tottenham Hotspur var á eftir honum síðasta sumar en ekkert varð af skiptunum. Grealish er klár í að taka næsta skref og er nokkuð ljóst að hann yfirgefur Villa ef liðið tekst ekki að koma sér upp í efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner