Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 23. apríl 2019 09:30
Elvar Geir Magnússon
Icardi orðaður við PSG
Icardi er 26 ára.
Icardi er 26 ára.
Mynd: Getty Images
Frakklandsmeistararnir í Paris Saint-Germain eru sagðir hafa áhuga á að kaupa sóknarmanninn Mauro Icardi frá Inter.

Gazzetta dello Sport segir að Icardi sé efstur á blaði hjá PSG sem vill fá hann í stað Edinson Cavani.

Í blaðinu segir að engar formlegar viðræður hafi enn átt sér stað en Inter er með 70 milljóna evra verðmiða á sér.

Argentínumaðurinn spilaði ekki fyrir inter í sex vikur eftir að hafa lent í samningadeilum við félagið. Samband hans við stuðningsmenn Inter er ekki upp á það besta.
Athugasemdir
banner
banner