Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. apríl 2019 16:57
Hafliði Breiðfjörð
Leiktímarnir í 32-liða úrslitum: Valur og FH mætast 1. maí
Valsmenn fá FH í heimsókn í fyrsta leik.
Valsmenn fá FH í heimsókn í fyrsta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur birt niðurröðun leikja í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla en dregið var klukkan 15:00 í dag og nú er ljóst hvenær leikirnir fara fram. Íslandsmeistarar Vals drógust gegn FH í stórleik umferðarinnar en sá leikur fer fram á frídegi verkalýðsins, miðvikudaginn 1. maí klukkan 16:00.

Leikjaniðurröðina má sjá í heild sinni hér að neðan en af 16 leikjum skarast aðeins fimm á við leikina í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu þessa vikuna það eru leikir þriðjudagsins sem skarast á við fyrri viðureign Tottenham og Ajax sem hefst 19:00 það kvöld. Enginn af leikjum miðvikudagsins skarast á við leik Barcelona og Liverpool sem hefst einnig 19:00.

Sunnudagur 28. apríl
13:00 Vestri - Úlfarnir

Þriðjudagur 30. apríl
18:00 ÍR - Fjölnir
18:00 Ægir - Þróttur
18:00 Fram - Njarðvík
18:00 Grindavík - Afturelding
18:00 Keflavík - Kórdrengir

Miðvikudagur 1. maí:
14:00 KÁ - Víkingur
14:00 Fylkir - Grótta
14:00 Augnablik - ÍA
14:00 Sindri - KA
14:00 HK - Fjarðabyggð
15:00 KR - Dalvík/Reynir
16:00 Magni - Breiðablik
16:00 ÍBV - Stjarnan
16:00 Valur - FH
16:00 Völsungur/Tindastóll - Mídas
Athugasemdir
banner