Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 23. apríl 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Leikmenn Arsenal brutu reglur
NicolaS Pepe.
NicolaS Pepe.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur aðvarað David Luiz, Alexandre Lacazette, Nicolas Pepe og Granit Xhaka eftir að þeir brutu reglur á meðan útgöngubann er í Englandi vegna kórónuveirunnar.

Leikmennirnir voru aðvarðair eftir að myndir birtust af þeim á samfélagsmiðlum þar sem þeir voru ekki að virða tveggja metra regluna.

Pepe sást spila fótbolta með vinum sínum í London.

Xhaka og Luiz voru að æfa saman í almenningsgarði og Lacazette sást ræða við mann án þess að tveir metrar væru á milli.

Í vikunni voru leikmenn Tottenham einnig gagnrýndir fyrir að virða ekki reglur vegna kórónuveirunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner