Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. apríl 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Moyes keyrir ávexti og grænmeti heim til eldri borgara
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, hefur nýtt tímann til góðra verka á meðan frí er í fótboltanum í Englandi vegna kórónuveirunnar.

Moyes hefur í fjóra daga unnið við að keyra ávexti og grænmeti heim til eldri borgara.

„Þegar kórónaveiran kom fyrst hingað þá var ég staddur í ávaxta og grænmetisbúð," sagði Moyes.

„Í glugganum var verið að auglýsa eftir ökumönnum. Ég bauð mig fram því að konan mín var ekki heima og ég var einn."

„Það sem ég gerði var að skilja fallega stóra körfu af ávöxtum og grænmeti eftir við dyrnar. Ég bankaði síðan og labbaði í burtu."

Athugasemdir
banner
banner
banner