Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. apríl 2021 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stórstjörnurnar klárar fyrir úrslitaleikinn?
Kevin de Bruyne.
Kevin de Bruyne.
Mynd: Getty Images
Það eru spurningamerki við það hvort stærstu stjörnurnar í liðum Tottenham og Manchester City geti spilað í úrslitaleik enska deildabikarsins á sunnudag.

Kevin de Bruyne, besti leikmaður Manchester City, hefur verið að glíma við meiðsli en hann gæti verið klár í slaginn á sunnudag að því er kemur fram á BBC.

Sergio Aguero, sóknarmaður Man City, gæti einnig verið klár í leikinn eftir meiðsli.

Þá er verið að fylgjast með stöðu mála hjá Harry Kane, besta leikmanni Tottenham. Hann missti af leiknum við Southampton í miðri viku vegna ökklameiðsla.

Manchester City er ríkjandi meistari í deildabikarnum en liðið hefur unnið keppnina þrisvar sinnum í röð.
Athugasemdir
banner
banner